Home

23rd Jul, 2008

  • 10:27 PM
sunny

YES YES YES!!!

 

Ætli það verði mikið um færslur á næstunni...

H.

Heim á ný

  • 17th Jul, 2008 at 8:33 PM
simpsonsAML

Eftir langþráð frí í Stóra-Bretlandi erum við hjónin komin heim og er það vel. Ég gef þessu fríi 4 stjörnur af 6 mögulegum.

      * Hittum fyrir gamla vini frá Manchester tímabilinu
      * Ferðuðumst með lest norður til Skotlands fram hjá grænum engjum og þokukenndum nautgripum
      * Dvöldum í gömlu bóndabýli í Speyside héraðinu hvar mamma, pabbi og Vala hittu okkur
      * Marineruðum okkur í whisky meira eða minna allan tímann sem við vorum þar (ahhh...)
      * Veðrið var æðislegt og sólin lék við hvern sinn fingur
      * Kom endurnærður heim og tilbúinn að takast á við morgundaginn

..en maður getur svosem sagt sjálfum sér að frí í Skotlandi verði frekar í blautari kantinum en hitt.

...

Þrátt fyrir að ljósmyndin hér til vinstri sýni glas með blönduðu vískýi þá var vitaskuld ekki mikið gefið fyrir svoleiðis sull. 4 eimingarhús voru skoðuð og eftir alla túrana mátti púsla saman vitneskju um eimingarframleiðsluferlið frá bútum af því sem öskrandi unglingarnir miðluðu til okkar.

      + Strathisla (Keith)
      + Glen Moray (Elgin)
      + Glenlivet
      + Balvenie (Dufftown)

Auk þess fórum við á kynningu í viskýsafninu í Dufftown hvar fulltrúi Glenmorangie deildi með okkur sex flöskum. Reyndar var síðasti túrinn (Balvenie) einna bestur enda "unglingurinn" á þeim bænum kominn á sjötugsaldur og hafði unnið í bransanum alla sína ævi. Þar á bæ halda men aukinheldur fast í hefðir og er þetta eitt af fáum húsum sem enn eru í fjölskyldueigu. Í flestum ef ekki öllum eimingarhúsum eru biggið keypt maltað frá stórframleiðendum en hjá Dalvenie nota þeir í bland sitt eigið bigg sem þeir hafa maltað eftir gamalli aðferð.

...

En ég nenni ekki að röfla um viský hérna á síðunni, enda lítið gaman af því að lesa um viský.

Er að vinna að því að setja upp Picasa myndasíðu, enda lítið gaman að lesa um annarra manna frí. Mun hlekkja ykkur við hana þegar uppsetningu er lokið.

Amen.

KISS & make-up

  • 16th Jun, 2008 at 6:47 PM
ace
Nokkuð strembin törn að baki við hönnun miðflótta-afls kúplingar með innbyggðum gírkassa. Ekki mikið meira um það að segja. Hef einnig lokið hönnun sjálfvirx bílastæðaturns úr LEGO í samstarfi við mann og annan og svo líka konu. Stundum er Danmörk bara of frábær, maður fær styrk frá danska ríkinu fyrir að leika sér með barnaleikföng. Fengum líka hæstu einkunn fyrir. Jibbí-jei!!

...

KISS & Make-upAnnars komu Jósi frændi og Stebbi maður svara til okkar í heimsókn á dögunum, þá helst fyrir þær sakir að ég narraði þá til að fylgja mér á tónleika með djassgeggjurunum í KISS, þar eð þeir komu við í Kaupmannahöfn á tónleikaferð sinni, Alive 35. Þökk sé andlitsmálingunni þá var ekki að greina mikla elli í fasi þeirra KISS-manna þrátt fyrir að sumir hverjir eigi ansi skammt í sjötuxaldurinn. Giggið var býsna gott og ég var eins glaður og skríkjandi smástelpa sem fengið hefur folald í jólagjöf frá ríka frænda sínum. Þeir keyrðu helst á gömlum slögurum KISS styðja almenningssamgöngur!frá áttunda áratugnum en svikust þó ekki um að spila hittarasúpuna í lokin. Einu bömmerarnir voru hljóðið í Forum og frammistaða áhorfenda í salnum. Það var eins og sumir vildu heldur drífa sig heim og horfa á Matador í fjögurhundruðogsautjánda skipti frekar en að öskra með og heddbanga sig til nálastungumeðferðar síðar meir. Heldur fannst mér Danir vera orðnir lúnir eitthvað.

Paul Stanley er víst kominn á þriðja mjaðmauppskurð. Ekki að sjá að það háði honum þó.

H.

Quake 2000 - Part II

  • 30th May, 2008 at 8:16 AM
kongen
Jænxúg!

Bara þrumuskjálfti heima. Það liggur við að maður fái barasta heimþrá, enda gerist aldrei neitt þessu líkt hérna í mýrinni. Farsælt að enginn hafi slasast alvarlega þó.

Það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég las um skjálftann var þó þetta hérna sem gerðist daginn áður. Kannski langsótt tenging en hvað veit ég? A.m.k. ekki alltof mikið um jarðfræði. Kannski Pierce Brosnan geti hjálpað?

Fróðlegt væri þó að spyrja þessa konu hvað henni fyndist um þetta. Kannski höfum vér Íslendingar kallað þetta yfir okkur sjálfa.

...

Það eina sem skekur Danmörku eru upphlaup vandræðaunglinga og landsliðið í kvennahandbolta, hvorugt þó hafandi nokkurn alþjóðlegan skala til mælingar.

H.

Ekta maður og ekta kona

  • 25th May, 2008 at 12:54 PM
simpsonsPETE

Þá er eitt próf að baki og annað eftir. Ekki get ég nú sagt að það hafi gengið neitt gríðarlega vel en maður uppsker það sem maður sáir, er ekki svo?

...

Veðurblíðan að drepa fólk! Það er ekki möguleiki að einbeita sér að nokkrum einasta hlut því það er sólskin og fuglarnir syngja í trjánum og allir krakkarnir eru úti að leika en ég þarf að húka inni við og lesa fyrir næsta próf. Hljómar eins og efni í íslenzkt dægurlag. Vont lag.

...

Softfocus hefur verið beitt á myndina til að efla væmniáhrifHildur og Tóti gengu í hnapphelduna á föstudaginn var og bundu hnútinn í ráðhúsinu í Frederiksberg. Það ku hafa verið borgarstjórinn sjálfur sem gaf þau saman. Athöfnin gekk snurðulaust fyrir sig og vitni á staðnum fullyrtu við blaðamann að parið hafi verið í skýjunum yfir ráðahagnum.

Eftir athöfnina tóku brúðhjónin á móti gestum í almenningsgarðinum í Frederiksberg hvar sólin skaut geislum sínum á allt og alla.

Að brúðkaupsnóttinni lokinni kvaðst brúðguminn geta staðfest að brúðurin hafi verið óspjölluð eins og vera ber en átti engu að síður bágt með að útskýra bjúgvöxt mikinn á kviðnum, ef til vill væri röngu mataræði að um að kenna.

...

Myndin þykir nógu væmin án softfocusJóakim Hinriksson, danskur prins, gekk einnig að eiga unnustu sína, hina frönskættuðu Maríu Cavallier, nú um helgina. Nú er prósentuhlutfall Frakka í dönsku konungsfjölskyldunni orðið heldur hátt og áður en langt um líður verður danskri tungu úthýst úr Amalienborg ef fram fer sem horfir.

En engin verður óbarin biskupsfrú. María er búin að lofa dönsku þjóðinni að læra dönsku. Fyrst að Hinrik drottningarmaður getur státað sig fram úr því, ættu aðrir Frakkar að geta það sama.

Það er þó skondið að sjá að þeir bræður Friðrik og téður Jóakim skuli hafa valið sér svo keimlíkar eiginkonur sem raun ber vitni. Ekki nóg með að þær heiti báðar María heldur eru þær afar svipaðar í útliti og fasi, a.m.k. fyrir almennilegum borgara eins og mér.

...

Rússar unnu. Æði.

Af hverju senda V-Evrópuþjóðir ekki sína beztu menn í þessa keppni í stað þess að láta einhverjar athyglissýkingar grassera á neonsprungnum dansgólfum með fljúgandi orrustu-myndavélum allt í kring? Ef við myndum senda Mugison eða Megas og Bretar sendu Morrissey (hann hefur nota bene sjálfur sagst myndu fara, yrði hann beðinn) og þar fram eftir götunum, þá væri þetta líka alvöru keppni. Er það ekki líka það sem austur-blokkin er að gera? Eru þessar leppalúður ekki stórstjörnur í eigin landi áður en þær eru sendar til slátrunar/sigurs á altari smekkleysunnar? Prófum það!

...

Au revoir

Support Denmark?!

  • 17th May, 2008 at 5:07 PM
badmood
Svona í tilefni þess að ég rak augun í einhvern klúbbinn á Fésbók, langar mig til að benda á nokkur atriði.

Eftir því sem ég kemst næst, þá er þetta félaxskapur fólx sem langar til að votta Dönum samúð og samstöðu í hinu svokallaða Múhammeðsteikningamáli sem öll börn ættu að hafa heyrt getið nú. Þá urðu frændur okkar Arabar sér í lagi svekktir yfir að teiknarinn Kurt Vestergaard skuli hafa skipt túrbani út fyrir logandi sprengju. Hótanir bárust og skipst var á skoðunum.

Gott og vel.

Ég styð Myndin er sviðsettog teiknifrelsi og prentfrelsi og nektarfrelsi og trúfrelsi og frelsi til að velja og Frelsi Símans og jájá..

..en mikið ósköp er þetta orðið barnalegt allt fyrir löngu síðan, og nú er svo komið að fólk er að safna í lið til að slást. Múgæsingur er afar lélegt fyrirbæri en það geta svosem flestir orðið fyrir barðinu á því, þ.e.a.s. ef þeir lesa sér ekki til um hvaða mafíu þeir eru að slást í hóp með, áður en þeir rita nafnið sitt á undirskriftarlistann.

...

Núna nýverið héldu Ísraelsmenn upp á að hafa harkað í Mið-Austurlöndum í 60 ár og afþreyingarmiðlar hafa verið duglegir við að rekja sögu þessa ólukkuríkis frá stofnun. Heldur hafa Palestínumenn orðið fyrir barðinu á þessum fléttuðu flónum þar sem þeir þurftu að gefa eftir landsvæði til að hægt væri að koma landleysunni á flot.

Þó svo ég einhvern tíman verið meðlimur af samtökunum Ísland-Palestína í samúðarskyni og verið andstæðingur Ísraelsríkis, þá vildi ég hvorugan málstaðinn taka upp ef ég yrði inntur eftir því í dag. Þetta snýst miklu meira um menn frekar en málefni. Í mínum fyrri tilraunum að sannfæra fólk um einhvern málstað, hef ég tekið eftir því að því meira sem ég rembist, því meiri fjarlægð skapast milli mín og fórnarlambsins/hlustandans.

Það væri örugglega alveg glimrandi gleði ef allir væru kristnir, eða allir múhammeðstrúar, eða enginn trú væri til. En svona er það bara ekki.. því miður. Þess vegna verður fólk að taka tillit til hvors annars.

Auljóslega snargeggjuðMér er andskotans sama hvort við höfum rétt til að segja og gefa út hvað sem okkur dettur í hug. Tjáningarfrelsi er án efa eitt af mikilvægari undirstöðum okkar menningar og ekkert okkar gæti gert sér í hugarlund að lifa lífinu öðruvísi. Maður verður líka að kunna að fara með það.

"Klukkan er sex, nú verða sagðar moðerfokking kvöldfréttir."

Þetta gæti Pétur Pétursson heitinn hafa sagt í útvarpi allra landsmanna. Við mundum bara ekki hafa kært okkur um það. Sama máli gegnir með að móðga heila þjóðflokka; tæknilega séð er ekkert sem getur bannað okkur að gera það, það væri bara gífurlega ósmekklegt og yrði örugglega illa tekið upp.

Jújú, þeir hóta að drepa þig í staðinn og það er jafnvel síðri hugmynd en sú fyrri. En hvernig ætlum við að bregðast við því?

"Jú, víst get ég sagt 'idda!! Víst, víst, víst, víst, víst!! Ég má það alveg!!!"

...

En aftur að Danmörkinni blessaðri. Nú hefur Danska Þjóðarflokknum tekist að hræða Andrés F. Rasmusen og restina af ríkisstjórninni svo hressilega með nýjasta baráttumálinu: Ef ekkert verður að gert, þá gætu dómarar framtíðarinnar verið með slæðu og dæmt fólk eftir Sharia lögum. Þetta er tóm klikkun, fyrir 4 vikum byrjuðu þeir að hengja upp veggspjöld um borg og bí hvar sjá mátti múslimska konu í búrku með dómarahamar (augljóslega tilbúin að dæma þig til geldingar fyrir vangoldin stöðumælagjöld). Nú í þessari viku sem leið var tillaga þess efnis að dómarar mættu ekki bera trúarleg tákn, samþykkt af Folketinget og stendur nú til að gera vitleysuna að lögum.

Svona hefur þessi hægri-öfga flokkur gott grip á eistunum hans Andrésar. Danskir dómarar eiga ekki eitt einasta orð yfir þessum sirkus og gátu hvergi komið að sínum málstað. Málið er ekki einu sinni á daxkrá: Það er engin múslímsk kona er að læra til dómara. Tómur hræðsluáróður.

Svo ætlar téður Andrés að troða upp sem formaður Evrópusambandsins ef orðrómurinn á við rök að styðjast. Heldur þættu mér það leið skilaboð að senda umheiminum ef þetta Davíðslíki sem telur sig ódauðlegan, færi að vesenast með fleiri haxmuni en raun ber vitni.

Skútan er farin að halla býsna mikið á stjórnborða ef þú spyrð mig.

...

Support Educate Denmark!

H.

Ég þekkti einu sinni mann...

  • 13th May, 2008 at 8:03 PM
skull
...sem vissi ekki að KISS væri bezta hljómsveit í heimi. Hann var líka afar illa upplýstur almennt.

Á myndina vantar þriðja tónleikamiðann 

Konan og bryggjan

  • 11th May, 2008 at 10:24 PM
nokia
Ég var að komast að því að ég get notað Nokia fjarskiptamyndavéladagbókina mína til að senda inn færslur á bloggið. Vá. Hvað næst? ..svartir forsetar?
11052008262
Sun 11/05/2008 19:47 11052008262

Mother-child reunion

  • 11th May, 2008 at 6:39 PM
sunny
Það var heitt. Það var glimmer. Það voru trommur. Það var dansað.
Við komum okkur fyrir á Amager torgi og ég prílaði upp á nærliggjandi gám og sat fyrir göngunni eins og versti paparazzi og skaut á allt og alla. Þá uppgötvaði ég ekki fyrr en heim var komið að white balance stillingin á vélinni var á fluorescent .. svoleiðis að allar myndirnar hafa einhvern bláan sjarma. Bömmer! Náði samt nokkrum góðum í safnið.

...

Þessi er uppáhalds: Tvímælalaust sigurstrangleg í krúttípútt mynd ársins!
 Mamma þarf að vinna..















Adios amigos!

Helgi.

Dr. Starrfelt

  • 10th May, 2008 at 9:23 AM
lego
Øv, Gisp og Suk! Ég er lasinn. Þvílíkt vonlaus tími til að vera með hálsbólgu. En sýklar spyrja víst ekki á undan sér frekar en aðrir hlutir. Nema ef vera skyldi Spur gosdrykkurinn sívinsæli. Ég ætla a.m.k. að láta sem ekkert C og halda mínu -i.

...

Mitt strik í dag felst í því að fara niður í miðbæ og fylgjast með danskri nálgun á kjötkveðjuhátíð með tilheyrandi dillandi bossum og sveiflandi brjóstum. Ætli Nækoninn verði ekki með í för, svona lagað verður að skjalfesta svo hægt sé að ylja sér við minninguna um hita og sólskin þegar kólna tekur. Til að toppa huggulegheitin þá er Pinseferie á mánudag, ergo 3ja daga helgi.

Við spúsan vorum viðstödd kvöldverð til heiðurs Randi, vinkonu Ö-M, í gær eftir að hún varði doktorsritgerðina sína í taugasálfræði. Þetta er hinn norski armur taugasálfræðimafíunnar sem ég er vízt viðriðinn meira eða minna. Svona Ph.D. uppákomur eru víst mun minna formlegar í Danmörku en í hinum nágrannalöndunum og t.a.m. er hægt að djóka í prófdómurunum án þess að móðga vizkugyðjuna á nokkurn hátt. Enginn hneygði sig fyrir neinum en allir skemmtu sér bara býsna vel.

Miss Saigon, Prófessor Vandráður og nýjasta uppfinning hans, norsk ljóska.

Myndina prýða f.v. ægifögur eiginkona mín, Jósteinn, bróðir doktorsins (hálf-hissa) og svo unnusta hans, Ingeborg.

Norðmenn eru beztu skinn, við A-M lögðum ekki í norskuna þó, kúpluðum yfir í ensku fremur snemma í ferlinu. Hefði kannski getað gengið one-on-one en ekki í öskra-yfir-borð. Ingeborg tjáði okkur að hún væri líffræðingur en starfaði engu að síður hjá Statoil, nota bene við umhverfisrannsóknir svo hún gat alveg sofnað á kvöldin með sæmilega samvisku. Hún ætti ennfremur vinkonu sem ynni hjá Saab Aerospace við að endurbæta miðunarbúnaðinn fyrir sprengjuflugvélar. Samanborið við hana væri hún bara fremur saklaus. Nauðsynlegt að eiga vonda vini.

Vinguðumst aukinheldur við þessa konu. Ætlum saman út að leika í dag.

Ekki frjósa!

H.

Lofsöngur

  • 9th May, 2008 at 2:58 PM
kongen







Ó, guð vors lands! Ó, lands vors guð,
vér lofum þitt heilaga, heilaga nafn.
Úr sólkerfum himnanna hnýta þér krans
þínir herskarar, tímanna safn.
Fyrir þér er einn dagur sem þúsund ár
og þúsund ár dagur, ei meir:
eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár,
sem tilbiður guð sinn og deyr.
       Íslands þúsund ár, -
eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár,
sem tilbiður guð sinn og deyr.



Ég ætla aldrei aldrei aldrei aldrei aldrei aftur að vinna hjá Ísbirninum!  

Þessi veðurspá var í boði Matthíasar Jochumssonar.